top of page

Öryggismál

Allir sérfræðingar Aðstoðar hafa starfað sem öryggisstjórar hjá stórum og eða meðalstórum fyrirtækjum og hafa mikla reynslu í gerð öryggis- og heilbrigðisáætlunar ásamt útfærslu á hættumati og áhættugreiningu.

Í fórum okkar eigum við ýmis sniðmát sem koma viðskiptavininum til góða þar sem það einfaldar vinnu og heldur kostnaði í lámarki.

Reglubundnar og markvissar öryggiseftirlitsferðir á vinnustaði hvort sem þeir eru staðbundnir eða tímabundir eru hluti af góðu öryggisumhverfi.

 

Við tökum að okkur slíkt reglubundið eftirlit á föstu verði, allt eftir umfangi vinnustaða og skilum  myndrænni skýrslu til stjórnenda.

 

Við þekkjum vel TR mælirinn og Elmeri sem er finnsk ættuð aðferðafræði þar sem lögð er áhersla á jákvæða nálgun á öryggiseftirliti.

Það má sækja leiðbeiningar hér að neðan með því að smella á:

Elmeri

TR-Mælirinn

bottom of page